*Forpöntun* INSPIRE LEGGINGS (7 litir)
ATH FORPÖNTUN - Varan er ekki til á lager en hægt er að panta vöruna og fá hana afhenta með næstu sendingu. Sjá á forsíðu hvenær næsta pöntun er á dagskrá.
Íþróttabuxur sem þú finnur varla fyrir!
Ef þú þolir ekki íþróttabuxur sem skerast inn í magann, upp í klof eða einhvern annan stað þá eru þetta draumabuxurnar þínar. Þær eru highwaist og efnið er ekkert eðlilega mjúkt og teygjanlegt og þér líður nánast eins og þú sért ekki í buxum! Myndi ekki segja að efnið sé aðhaldsefni, það er ekki svo þétt.
Henta vel sem kósýbuxur og límast vel utaná mann á æfingum. Persónulega hef ég prófað að hlaupa í þeim, farið á crossfitæfingu og verið í þeim í kósý uppí sófa og þær eru geggjaðar í þessu öllu.
- 70% Nylon, 30% Spandex
- Þvoið með sömu litum á köldu prógrami.
- Uppháar
- 7/8 sídd & full sídd á skálmum
- Breitt efni yfir magasvæði
Stærðartöflu getur þú fundið hér
Hér getur þú fundið sömu flík í lit sem við eigum til á lager hjá okkur.