Um Pro-Active.is
Pro-Active er íslensk verslun með æfinga- og hversdagsfatnað fyrir konur og karla. Áherslan er á þægilegar flíkur sem nýtast vel, hvort sem er á æfingu eða í daglegu lífi.
Við bjóðum uppá fatnað frá Born Primitive — allt frá æfingabuxum, íþróttatoppum og stuttbuxum yfir í peysur og buxur fyrir afslappaðri daga. Fjölbreytt snið og mismunandi síddir á völdum buxum auðvelda viðskiptavinum að finna flíkur sem henta þeim.
Netverslun og verslun í Fákafeni
Pro-Active hóf starfsemi sem netverslun árið 2020 og opnaði verslun í Fákafeni 9 haustið 2026. Þar er hægt að skoða úrvalið, máta og fá aðstoð við val á stærðum og sniðum. Fyrir þá sem kjósa að versla að heiman er netverslunin á proactive.is alltaf opin.
Fólkið á bak við Pro-Active
Andrea Rós er eigandi og stofnandi Pro-Active. Persónuleg þjónusta hefur verið hluti af versluninni frá upphafi og lögð er áhersla á að viðskiptavinir geti auðveldlega leitað ráða og fengið svör við spurningum um vörurnar.
Úrvalið heldur áfram að þróast og ábendingar og óskir viðskiptavina eru alltaf vel þegnar.
Staðsetning
Fákafen 9, efri hæð, keyrt upp rampinn milli Brauð og Co. og Icewear
Netfang
proactiveverslun@gmail.com
Pro-Active ehf.
Kennitala: 471118-0790